framkvæmdaleyfi
Álmgerði - Hæðargarður
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 729
24. maí, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn THG Arkitekta ehf. dags. 7. nóvember 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir Landspítala Grensásdeildar vegna lóðarinnar nr. 1 við Álmgerði. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður, byggingarmagn og nýtingarhlutfall eykst, hæð viðbygginga til vesturs breytist, bílastæðafjöldi breytist ekki vegna eðlis starfseminnar og gert verði ráð fyrir 31 hjólastæði, samkvæmt uppdr. THG Arkitekta ehf. dags. 27. september 2018. Tillagan var auglýst frá 5. apríl 2019 til og með 21. maí 2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107763 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011546