(fsp) breyting á deiliskipulagi
Tjarnarsel 2
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 584
6. maí, 2016
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 15. apríl 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. apríl 2016 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem eru taldar upp í byggingarlýsingu og til að taka í notkun óútgrafið rými í kjallara í húsinu á lóð nr. 2 við Tjarnarsel. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 4. maí 2016.
Stækkun húss: 161,2 ferm., 278,4 rúmm. Gjald kr. 10.100
Svar

Jákvætt, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. maí 2016.