framkvæmdaleyfi
Eiðsgrandi - Ánanaust
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 855
4. febrúar, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Eiðsgranda - Ánanausts. Í breytingunni felst að gerður er byggingarreitur fyrir áningastað við Sjóvarnargarðinn þar sem hann er hæstur. Við breytinguna færist lega núverandi göngu- og hjólastígs lítillega, samkvæmt uppdr. Hornsteina arkitekta, dags. 5. nóvember 2021. Tillagan var auglýst frá 17. desember 2021 til og með 31. janúar 2022. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lagt fram bréf Íbúaráðs Vesturbæjar dags. 21. janúar 2022.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.