nr. 10 - staðsetning ökutækjaleigu
Holtavegur 8-10
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 727
10. maí, 2019
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. apríl 2019 var lagt fram bréf Samgöngustofu dags. 16. apríl 2019 þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar Arnars Kristinssonar f.h. Eskimo Rental ehf. um að reka ökutækjaleigu að Holtavegi 10. Sótt er um leyfi fyrir 8 ökutækjum í útleigu. Geymslustaður bifreiða verður að Smiðjuvegi 46E, gul gata, Kópavogur. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. maí 2019.
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. maí 2019.