breyting á deiliskipulagi
Ingólfsstræti 1
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 760
31. janúar, 2020
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Sigurðar Halldórssonar arkit. f.h. Framkvæmdafélagsins Skjald ehf. dags. 9. apríl 2019 ásamt bréfi dags. 9. apríl 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 1 við Ingólfsstræti. Í breytingunni felst að heimila stækkun á inndreginni efstu hæð hússins og nýjan inngang frá Skúlagötu, samkvæmt uppdrætti Arkitekta Laugavegi 164 ehf. /Glámu-Kím dags. 20. nóvember 2019. Einnig er lögð fram skýringarmynd dags. 20. nóvember 2019 og aðaluppdr. dags. 13. september 2019 sem sýnir stækkun efstu hæðar. Tillagan var auglýst frá 16. desember 2019 til og með 29. janúar 2020. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: íbúaráð Miðborgar og Hlíða dags. 29. janúar 2020 og Gunnar Árnason f.h. EON arkitekta ehf. dags. 29. janúar 2020.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100974 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023200