Breyta innra skipulagi
Köllunarklettsvegur 4
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 712
18. janúar, 2019
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. janúar 2019 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi á 2. hæð, rými 0201 sem skipt verður í 15 vinnustofur fyrir listamenn, koma fyrir svölum á vesturhlið og fellistiga á suðurhlið ásamt því að koma fyrir opnanlegum þakgluggum á þennan eignarhluta og skipta rými 0109 á 1. hæð í tvennt í húsi á lóð nr. 4 við Köllunarklettsveg.
Umsögn Faxaflóahafna um breytingu á deiliskipulagi og samþykki meðeigenda dags. 15. október 2018 fylgir erindi. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. nóvember 2018 fylgir erindi. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. janúar 2019. Gjald kr. 11.000
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 18. janúar 2019.

Landnúmer: 180644 → skrá.is
Hnitnúmer: 10066736