Bílageymslu breytt í íbúð
56">Bergþórugata 5
Síðast Synjað á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 651
29. september, 2017
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 2. júní 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. maí 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu til vesturs og til austurs, byggja rishæð og innrétta fjórar íbúðir í einbýlishúsi á lóð nr. 5 við Bergþórugötu. Erindinu var svarað neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 2. júní 2017. Lagt fram bréf hönnuðar, dags. 13. júlí 2017 þar sem farið er fram á endurskoðun ákvörðunar skipulagsfulltrúa. Einnig er lagður fram tölvupóstur skipulagsfulltrúa dags. 21. september 2017.
Stækkun: 209,1 ferm., 614,2 rúmm. Stærð eftir stækkun, A-rými: 442 ferm., 1.332,2 rúmm. B-rými: 110,6 ferm. Gjald kr. 11.000
Svar

Lagt fram.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102429 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007107