(fsp) breyting á notkun 2. hæðar hússins
Faxafen 10
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 342
17. mars, 2011
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi Halldórs Guðmundssonar f.h. húsfélagið Faxafeni 10 dags. 11. janúar 2011, breytt 3. febrúar 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skeifan-Fenin vegna lóðarinnar nr. 10 við Faxafen. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit fyrir anddyri, samkvæmt uppdrætti THG arkitekta dags. 10. janúar 2011 breytt 3. janúar 2011. Erindið var grenndarkynnt frá 10. febrúar 2011 til og með 10. mars 2011. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar

108 Reykjavík
Landnúmer: 195609 → skrá.is
Hnitnúmer: 10072729