breyting á deiliskipulagi vegna lóðarinnar Bæjarflöt 19
Gylfaflöt
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 744
20. september, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. júní 2019 var lögð fram umsókn Hermanns Georgs Gunnlaugssonar dags 24. júní 2019 ásamt bréfi dags. 24. júní 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir Gylfaflöt, suður vegna lóðarinnar nr. 19 við Bæjarflöt. Í breytingunni felst breyting á byggingarreit þar sem skilgreindir eru þrír minni byggingarreitir í stað eins og þeim snúið þannig að lega þeirra er austur-vestur, hámarkshæð byggingar lækkar í 8 metra o.fl., samkvæmt uppdrætti Teiknistofunnar Storð dags 19. september 2019. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Gylfaflöt 6-8 og 10-12.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6.gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.