Brunastigi - breyting inni
Sóleyjargata 31
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 666
26. janúar, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. desember 2017 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í kjallara og á 1. hæð, koma fyrir brunastiga á bakhlið frá 2. hæð og björgunarpalli á þaki og innrétta gististað í flokki II á lóð nr. 31 við Sóleyjargötu. Erindi var grenndarkynnt frá 22. desember 2017 til og með 24. janúar 2018. Engar athugasemdir bárust.
Lagðar eru fram umsagnir skipulagsfulltrúa dags. 19. maí 2017 og 25. ágúst 2014. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. október 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. október 2017. Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102749 → skrá.is
Hnitnúmer: 10019345