Brunastigi - breyting inni
Sóleyjargata 31
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 661
8. desember, 2017
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. desember 2017 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í kjallara og á 1. hæð, koma fyrir brunastiga á bakhlið frá 2. hæð og björgunarpalli á þaki og innrétta gististað í flokki II á lóð nr. 31 við Sóleyjargötu.
Lagðar eru fram umsagnir skipulagsfulltrúa dags. 19. maí 2017 og 25. ágúst 2014. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. október 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. október 2017. Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Smáragötu 6 og 8 og Sóleyjargötu 33.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102749 → skrá.is
Hnitnúmer: 10019345