breyting á deiliskipulagi
Hverfisgata 65 og 67
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 755
13. desember, 2019
Samþykkt
466235
466155 ›
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Richards Ólafs Briem, mótt. 17. mars 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Skúlagötusvæðis vegna lóðanna nr. 65 og 67 við Hverfisgötu. Í breytingunni felst breyting á byggingarreit, samkvæmt uppdr. VA arkitekta ehf., dags. 28. júlí 2015 síðast br. 21. október 2019 og dags. 26. september 2019. Einnig er lögð fram umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 31. maí 2016 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 15. október 2019. Tillaga var grenndarkynnt frá 12. nóvember 2019 til og með 10. desember 2019. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101109 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022386