Göngubryggja - tenging gönguleiða að bryggjum
Grandagarður 8
Síðast Synjað á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 634
2. júní, 2017
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. maí 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. maí 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja göngubrú sem tengir gönguleið frá Rastagötu að bryggju við Sjóminjasafn og liggur að húsi á lóð nr. 8 við Grandagarð. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. júní 2017.
Erindi fylgir samþykki Faxaflóahafna dags. 24. apríl 22017. Gjald kr. 11.000
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 2. júní 2017. Samræmist ekki deiliskipulagi.