lóðabreyting
Brautarholt 18 og 20
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 740
23. ágúst, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. maí 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. maí 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja inndregna 5. hæð ofan á hús og innrétta 22 íbúðir á 2. - 5. hæð, stækka glugga, koma fyrir svölum, byggja stiga- og lyftuhús og hjóla- og vagnageymslur sem verða sameiginlegar með húsi nr. 20 á baklóð húss á lóð nr. 18 við Brautarholt. Einnig er lagður fram lóðauppdráttur dags. 19. júlí 2019 og breytingarblað umhverfis- og skipulagssviðs dags 11. apríl 2019. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. ágúst 2019.
Erindi fylgir greinargerð hönnuða um ábyrgðarsvið dags. 8. apríl 2019, heildarleiðnitap dags. 16. janúar 2019 og greinargerð hönnuða dags. 30. apríl 2019. Stækkun: xx ferm., xx rúmm. Eftir stækkun, mhl. 01: 1.379,8 ferm., 4.861,8 rúmm. Mhl. 02: 132,3 ferm., 377 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Laugavegi 164, 166, 168, 170, 172 og 174, Brautarholti 16 og 22 og Skipholti 15, 17 og 19.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103036 → skrá.is
Hnitnúmer: 10007696