starfsemi Ísteka ehf.
Grensásvegur 8 og Eirhöfði 13 og 15
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 681
18. maí, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. mars 2018 þar sem sótt er um leyfi til að koma fyrir svölum og flóttastiga á suðvesturgafli og svölum á norðausturgafli, koma fyrir þakgluggum og innrétta gististað í flokki II, teg. b fyrir 74 gesti á 2., 3. og 4. hæð húss á lóð nr. 8-10 við Grensásveg. Erindi var grenndarkynnt frá 17. apríl 2018 til og með 15. maí 2018. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir samþykki meðeiganda í húsi dags. 28. nóvember 2017, hljóðvistargreinargerð dags. 1. febrúar 2018 og minnisblað um lagnaleiðir dags. 21. mars 2018. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. janúar 2018 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. janúar 2018. Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.