deiliskipulag
Efstaleiti 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 562
13. nóvember, 2015
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. nóvember 2015 þar sem sótt er um leyfi til að setja upp tvo fjarskiptaskerma, 8 metra í þvermál á steypta þakplötu 1. hæðar á austurhlið á húsinu á lóð nr. 1 við Efstaleiti.
Umsókn frá hönnuði í tölvupósti um að láta grenndarkynna erindið dags. 4. nóv. 2015 fylgir. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. október 2015 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. október 2015. Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Efstaleiti 3, 5, 7 og 9, Stóragerði 42 og Viðjugerði 2, 4, 6, 8, 10 og 12.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 8.1. gr., sjá Gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2015.

103 Reykjavík
Landnúmer: 107438 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008509