deiliskipulag
Efstaleiti 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 568
8. janúar, 2016
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. nóvember 2015 þar sem sótt er um leyfi til að setja upp tvo fjarskiptaskerma, 8 metra í þvermál á steypta þakplötu 1. hæðar á austurhlið á húsinu á lóð nr. 1 við Efstaleiti. Erindi var grenndarkynnt frá 1. desember til og með 22. desember 2015. Engar athugasemdir bárust.
Umsókn frá hönnuði í tölvupósti um að láta grenndarkynna erindið dags. 4. nóv. 2015 fylgir. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. október 2015 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. október 2015. Gjald kr. 9.823
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

103 Reykjavík
Landnúmer: 107438 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008509