Viðbygging baklóð - breyting 1-3.hæð
Ármúli 2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 496
20. júní, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. apríl 2014 þar sem sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi innanhúss á 1. - 3. hæð, færa til skilveggi, til að byggja búningsaðstöðu úr forsteyptum einingum og gera afgirt reiðhjólasvæði á baklóð við starfsmannainngang skrifstofuhúss á lóð nr. 2 við Ármúla. Einnig er lagður fram tölvupóstur Elínar Kjartansdóttur arkitekts dags. 6. maí 2014. Erindi var grenndarkynnt frá 15. maí til og með 12. júní 2014. Engar athugasemdir bárust.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 8. apríl 2014. Stærðir: 70,6 ferm., 240,7 rúmm. Gjald kr 9.500
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 103756 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011142