breyting á deiliskipulagi
Bústaðavegur 145A
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 881
25. ágúst, 2022
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Veitna ohf. dags. 19. ágúst 2022, um breytingu á deiliskipulagi Bústaðarvegar 151-153 vegna lóðar spennistöðvar vestan aðkomuvegar. Í breytingunni sem lögð er til felst að lóðin fær nýtt staðfang, lóðin er við Bústaðarveg 151E en verður eftir breytinguna við Bústaðaveg 145A, lóðin lengist um 4m til suðurs frá því að vera 35m2 í að vera 55 m2 þannig að endanleg lóð verði 55m2 og byggingarreitur stækkar, samkvæmt uppdr. Landaslags ehf. dags. 16. ágúst 2022.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1551/2021.

108 Reykjavík
Landnúmer: 226719 → skrá.is
Hnitnúmer: 10148167