Br. og viðbót við hús.
Hellusund 6A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 894
24. nóvember, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. október 2022 þar sem sótt er um leyfi til að breyta notkun úr íbúðarhúsi í skrifstofuhúsnæði, byggja tengigang við norður lóðarmörk ásamt tilheyrandi breytingum á innra skipulagi og útlitsbreytingum því til samræmis, 8-10 starfsmenn í húsi á lóð nr. 6A við Hellusund. Erindi var grenndarkynnt frá 25. október 2022 til og með 22. nóvember 2022. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102168 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011830