Hækka þak - tengigangur o.fl.
Heiðargerði 34
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 848
3. desember, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. nóvember 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. nóvember 2021 þar sem sótt er um leyfi til að hækka þak aðalbygginga um 70 cm, kvistir stækkaðir, komið fyrir tveimur þakgluggum og færa mæni lægra húss upp í efri, tengja núverandi bílskúr við aðalhúsið með tengigangi og nýju anddyri, bílskúr verði stofurými, við enda tengigangs til austurs verði innangengt í glerskála og gróðurhús, gluggi stækkaður í risi og komið fyrir nýjum glugga á fyrstu hæð norðurhliðar, jafnframt er stefna þakhalla bílskúrs breytt til norðvesturs á húsi á lóð nr. 34 við Heiðargerði. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. desember 2021.
Stækkun er: xx,x ferm., xx,x rúmm. Erindi fylgir yfirlit breytinga dags. 8. nóvember 2021, afrit aðaluppdrátta sem samþykktir voru þann 8. maí 1952 og 25. júlí 1963. Gjald kr.12.100
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. desember 2021 samþykkt.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107650 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011713