breyting á deiliskipulagi
Stefnisvogur 1 og 2 (reitir 1-2 og 1-6)
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 866
29. apríl, 2022
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Hjalta Brynjólfssonar dags. 13. apríl 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vogabyggðar svæðis 1 vegna lóðanna nr. 1 og 2 við Stefnisvog (reitir 1-2 og 1-6). Um nokkrar breytingar er að ræða í umsókninni m.a. aukningu á byggingarmagni bílgeymslu neðanjarðar eykst og lóð 1-2 leysir bílastæði innan eigin lóðar og þannig er aukninga á heildarbyggingarmagni lóðar. Á lóð 1-6 þá eru óskir um að fjórir húshlutar verði á lóð í stað þriggja ofan á bílageymslu og bundin byggingarlína íbúðarhús ofan á bílgeymslu breytist samhliða. Byggingarreitur og skörð með dvalarsvæðum milli húshluta breytast/færast til og íbúðum er fjölgað úr 51 íbúð í 60 íbúðir og fjórar innkeyrslur í bílgeymslu í stað þriggja. Ofanvatnslausnir og svæði með gegndræpu yfirborði breytist í samræmi við breytingu á húshlutum, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Arkþing/Nordic ehf. ódags. Einnig eru lagðir fram skilmálar fyrir húsbyggingar og mannvirki á lóð dags. 26. janúar 2018, síðast br. 5. apríl 2022.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.