Stækkun húss - ný hæð
Laugarnesvegur 75
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 872
10. júní, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. maí 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. maí 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja eina hæð ofan á núverandi hús og byggja yfir núverandi tröppur við aðalinngang á húsi á lóð nr. 75 við Laugarnesveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. júní 2022.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. júní 2022, samþykkt.

105 Reykjavík
Landnúmer: 104048 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017419