Kvistur og þaksvalir. Gera timburpall, hjólageymslu og sorpskýli
Miðstræti 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 862
25. mars, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. janúar 2022 þar sem sótt er um leyfi til að gera kvist og þaksvalir á austurhlið þriðju hæðar, stækka kvisti og sameina rými á annarri hæð, gera dyr út úr eldhúsi fyrstu hæðar að palli og tröppum til austurs og nýjar kjallaratröppur á austurhlið, bætt við hjólageymslu og timburpalli í suðaustur horni lóðar og sorpskýli komið fyrir við lóðarmörk til norðurs við hús á lóð nr. 5 við Miðstræti. Erindi var grenndarkynnt frá 21. febrúar 2022 til og með 21. mars 2022. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101944 → skrá.is
Hnitnúmer: 10021767