Kvistur og þaksvalir. Gera timburpall, hjólageymslu og sorpskýli
Miðstræti 5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 854
28. janúar, 2022
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. janúar 2022 þar sem sótt er um leyfi til að gera kvist og þaksvalir á austurhlið þriðju hæðar, stækka kvisti og sameina rými á annarri hæð, gera dyr út úr eldhúsi fyrstu hæðar að palli og tröppum til austurs og nýjar kjallaratröppur á austurhlið, bætt við hjólageymslu og timburpalli í suðaustur horni lóðar og sorpskýli komið fyrir við lóðarmörk til norðurs við hús á lóð nr. 5 við Miðstræti.
Stækkun er: 5 ferm., 18,1 rúmm. Erindi fylgir yfirlitsmynd götureits ódagsett, umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 14. september 2021 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 6. september 2021. Samþykki eigenda aðliggjandi lóða dags. 25. nóvember 2021. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. desember 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. nóvember 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 13. desember 2021. Gjald kr.12.100
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Miðstræti 3a og 7 og Ingólfsstræti 24, 26 og 28.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynninguna, sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1551/2021.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101944 → skrá.is
Hnitnúmer: 10021767