breyting á deiliskipulagi
Teigagerði 8
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 870
31. maí, 2022
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Úti og inni arkitekta dags. 20. apríl 2022 ásamt minnisblaði dags. 13. apríl 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Teigagerðisreits vegna lóðarinnar nr. 8 við Teigagerði. í breytingunni felst að gerður er byggingarreitur fyrir viðbyggingu, á jarðhæð, við suðaustur kverk hússins, ásamt því að upprunalegir kvistir á húsinu eru rýmkaðir sem leiða aukins byggingamagns, samkvæmt uppdr. Úti og inni arkitekta dags. 6. apríl 2022. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðar.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Teigagerði 5, 7, 9 og 10.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7. 6. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1551/2021.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108077 → skrá.is
Hnitnúmer: 10023547