Ýmsar breytingar
Suðurgata 35
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 830
21. júlí, 2021
Synjað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. júlí 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að gera breytingar á garðvegg að Skothúsvegi til þess að koma fyrir sorptunnugeymslu, breyta útliti bílskúrshurðar mhl.02 og gera nýja svalahurð og svalir með aðgengi að garði við suðvesturhlið einbýlishúss á lóð nr. 35 við Suðurgötu.
Erindi fylgir mæliblað 1.142.2 útgefið 31. janúar 1984 og yfirlit breytinga á skýringaruppdráttum Glámu Kím dags. 21. janúar 2021.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 30. apríl 2021 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. apríl 2021. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 3. maí 2021.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. júní 2021 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 29. júní 2021. Gjald kr. 12.100
Svar

Neikvætt. Ekki er hægt að grenndarkynna framlagða uppdrætti þar sem þeir eru ekki í samræmi við umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. apríl 2021.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100927 → skrá.is
Hnitnúmer: 10021971