breyting á deiliskipulagi
Nýlendugata 21 og 21A
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 821
21. maí, 2021
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Stefáns Arnar Stefánssonar dags. 5. maí 2021 ásamt greinargerð dags. 7. apríl 2021 um breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits vegna lóðanna nr. 21 og 21A við Nýlendugötu sem felst í að auka megi porthæð við leyfða hækkun þaks á báðum lóðum, heimilað verði að hafa áfram tvær hæðir í bakbyggingu á lóð nr. 21 ásamt tengibyggingu við framhús, heimilað verði stigahús að gangstétt á lóð nr. 21A og stakstætt vinnuhúsnæði á baklóð á einni hæð ásamt því að heimilt verði að vera með sjö íbúðir innan lóða, samkvæmt uppdr. Argor ehf. dags. 1. febrúar 2021. Einnig er lagt fram yfirlit yfir núverandi stærðir og fyrirhugaða stækkun.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100171 → skrá.is
Hnitnúmer: 10024239