Breyta glugga í rennihurð og koma fyrir palli og geymslu
Hringbraut 102
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 820
14. maí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. maí 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. maí 2021 þar sem sótt er um leyfi til að breyta glugga á norðurgafli í rennihurð og byggja þar svalir með tröppu niður í garð með hjóla- og sorpgeymslu undir á húsin á lóð nr. 102 við Hringbraut. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. maí 2021.
Erindi fylgir samþykki eiganda húss nr. 100. Gjald kr. 12.100
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. maí 2021, samþykkt.

101 Reykjavík
Landnúmer: 100780 → skrá.is
Hnitnúmer: 10020673