Svalahurð og hækkun bílskúrsþaks
Reynimelur 29
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 822
28. maí, 2021
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. mars 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta útliti allra glugga, stækka hurð út á svalir á bílskúrsþaki og setja rennihurð, grafa frá suður- og vesturhlið kjallara, síkka glugga og setja rennihurð út í garð og gera stoðveggi á lóð nr. 29 við Reynimel. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. apríl 2021. Jafnframt er lagt fram bréf LMG lögmanna dags. 28. maí 2021 þar sem óskað er eftir endurskoðun á umsögn skipulagsfulltrúa, umsögn Péturs Ármannssonar arkitekts dags. 7. maí 2021 og uppfærðar teikningar Balsa ehf. dags. 4. febrúar 2021.
Erindi fylgir minnisblað burðarvirkishönnuðar dags. 8. febrúar 2021, samþykki eiganda íbúðar 0001 dags. 5. febrúar 2021 og yfirlit breytinga á A3 afriti af teikningum samþykktum 6. apríl 2004. Gjald kr. 12.100
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.

107 Reykjavík
Landnúmer: 106331 → skrá.is
Hnitnúmer: 10013480