Svalir - svalahurð - áður gerðar breytingar Lokaúttekt vegna: svalir, tröppur og svalahurð.
Rafstöðvarvegur 29
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 858
25. febrúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. febrúar 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. febrúar 2022 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á þakkanti, gluggum, færslu léttra veggja, breytingar á innra skipulagi, fjölgun baðherbergja og þvottarýma, gerð kaffistofu, komið fyrir þakglugga á norður og suðurhlið, breyting á stiga milli 1. hæðar og rishæðar og útkrögun við glugga fjarlægð, jafnframt er sótt um að byggja svalir og tröppur niður í garð út úr stofu jarðhæðar og tvöfaldri svalahurð á suðurhlið húss á lóð nr. 29 við Rafstöðvarveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. febrúar 2022.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 25. febrúar 2022, samþykkt.

110 Reykjavík
Landnúmer: 110958 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022036