(fsp) stækkun lóðar
Vesturberg 193
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 822
28. maí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. febrúar 2021 var lögð fram fyrirspurn Teits Arnlaugssonar dags. 17. febrúar 2021 um stækkun lóðarinnar nr. 193 við Vesturberg til austurs um gamlan akveg við vatnsdælustöð við Vesturberg 195 sem nú er aflögð. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. mars 2021.
Svar

Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. mars 2021.

111 Reykjavík
Landnúmer: 112030 → skrá.is
Hnitnúmer: 10012942