breyting á deiliskipulagi
Bergþórugata 18
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 819
7. maí, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn a2f arkitekta ehf. dags. 23. apríl 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skólavörðuholts vegna lóðarinnar nr. 18 við Bergþórugötu. Í breytingunni felst að byggingarreitur er færður til vesturs ásamt því að bætt er við heimild í skilmála að útitröppur megi fara út fyrir byggingarreit, samkvæmt uppdr. a2f arkitekta ehf. dags. 15. apríl 2021.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Bergþórugötu 16a.
Erindið verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 7.6. gr. sbr. 12 gr., sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.