Afmörkun aukaíbúðar í kjallara og óútgröfnu rými breytt í tómstundarrými
Stekkjarsel 7
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 820
14. maí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. apríl 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 13. apríl 2021 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem eru að breyta geymslu í kjallara í aukaíbúð og óútgröfnu rými er breytt tómstundarrými í einbýlishúsi á lóð nr. 7 við Stekkjarsel. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. maí 2021.
Stækkun, óútgrafið rými: 59,4 ferm., 149,6 rúmm. Erindi fylgir bréf umsækjanda dags. 16. mars 2021. Gjald kr.12.100
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 12. maí 2021, samþykkt.

109 Reykjavík
Landnúmer: 112660 → skrá.is
Hnitnúmer: 10021007