Þaksvalir
Grettisgata 98
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 826
25. júní, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Arnar Dúa Kristjánssonar dags. 10. maí 2021, ásamt greinargerð dags. 10. maí 2021, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.240.3 vegna lóðarinnar nr. 98 við Grettisgötu. Í breytingunni felst heimilt verði að setja svalir á austurgafl hússins í tengslum við núverandi kvist, samkvæmt uppdr. Ark Studio ehf. dags. 10. maí 2021. Einnig er lögð fram fundargerð húsfélagsins að Grettisgötu 90-98 dags. 26. apríl 2021. Tillagan var grenndarkynnt frá 16. júní 2021 til og með 15. júlí 2021 en þar sem samþykki hagsmunaaðila barst þann 23. júní 2021 er erindi nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt með vísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og með vísan til heimilda í a. lið 2. gr. í viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa nr. 1020/2019.

105 Reykjavík
Landnúmer: 102993 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011667