Þaksvalir
Grettisgata 98
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 823
4. júní, 2021
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. maí 2021 var lögð fram umsókn Arnar Dúa Kristjánssonar dags. 10. maí 2021, ásamt greinargerð dags. 10. maí 2021, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.240.3 vegna lóðarinnar nr. 98 við Hringbraut. Í breytingunni felst heimilt verði að setja svalir á austurgafl hússins í tengslum við núverandi kvist, samkvæmt uppdr. Ark Studio ehf. dags. 10. maí 2021. Einnig er lögð fram fundargerð húsfélagsins að Grettisgötu 90-98 dags. 26. apríl 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Rauðarárstígur 18 og Grettisgötu 89.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1472/2020.

105 Reykjavík
Landnúmer: 102993 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011667