framkvæmdaleyfi
Gjúkabryggja og Beimabryggja
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 782
17. júlí, 2020
Samþykkt
470803
470983 ›
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. júlí 2020 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 25. júní 2020 um framkvæmdaleyfi vegna gatnagerða og lagna í 1. áfanga uppbyggingar í stækkun Bryggjuhverfis (Gjúkabryggja og Beimabryggja). Einnig er lagt fram teikningasett Verkís hf. dags. í júní 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. júlí 2020.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags.17. júlí 2020. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.