Viðbygging, þaksvalir o.fl.
Laufásvegur 50
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 809
19. febrúar, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. janúar 2021 þar sem sótt er um leyfi til að stækka anddyrisviðbyggingu, byggja einnar hæðar viðbyggingu garðmegin, hækka þak og breyta kvistum, gera þaksvalir á báðum viðbyggingum, endureinangra hús að innan og breyta innra skipulagi og einangra og klæða skúr að utan og færa innkeyrslu/bílastæði suður fyrir hús á lóð nr. 50 við Laufásveg. Erindi var grenndarkynnt frá 19. janúar 2021 til og með 16. febrúar 2021. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lagður fram tölvupóstur Flosa Kristjánssonar f.h. húseigenda að Laufásvegi 48 dags. 21. janúar 2021 þar sem ekki er gerð athugasemd við erindið.
Erindi fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. ágúst 2020, bréf hönnuðar dags. 24. nóvember 2020, samþykki næstu nágranna áritað á skissur, umsögn Minjastofnunar dags. 3. nóvember 2020 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 7. desember 2020. Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. desember 2020, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. desember 2020 og bréf skipulagsfulltrúa dags. 21. desember 2020. Stækkun: 80 ferm., 241,8 rúmm.
Samtals á lóð eftir stækkun: 250,5 ferm., 750,7 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102193 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015925