Áður gert að hluta, sameina efstu hæð og ris.
Njarðargata 47
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 769
17. apríl, 2020
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. apríl 2020 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum vegna eignaskiptayfirlýsingar sem felast í því að gerðar voru svalir á norðurhlið, og sótt er um að gera eldhús í rými 0001, sameina rishæð 0301 við 0201 með því að brjóta niður vegg sem skilur á milli rýma og að auki er innra skipulagi breytt í húsi á lóð nr.47 við Njarðargötu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2020.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda, ódags., umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 6. febrúar 2020 og bréf hönnuðar dags. 19. febrúar 2020. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. mars 2020 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. mars 2020. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 16. mars 2020. Gjald kr. 11.200
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. apríl 2020 samþykkt.