Hækka hús - innrétta ris
Hólmgarður 33
Síðast Synjað á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 763
28. febrúar, 2020
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. febrúar 2020 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. febrúar 2020 þar sem sótt er um leyfi til að hækka þak og byggja kvisti til norðurs og suðurs, innrétta íbúðarrými í risi auk þess sem svalir eru settar út frá kvistum sem snúa til suðurs, baðherbergi stækkað og geymslu komið fyrir í stigagangi, á 2. hæð í húsi á lóð nr. 33 við Hólmgarð. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. febrúar 2020.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda hús nr. 33 dags. 27. janúar 2020 og samþykki eigenda á nr. 33 og 35 dags. 30. janúar 2020. Stækkun húss er: 109,3 ferm., 36,8 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 28. febrúar 2020.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108234 → skrá.is
Hnitnúmer: 10019685