Stækka bílgeymslu
Sólvallagata 10
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 763
28. febrúar, 2020
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. desember 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. desember 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja nýja forstofu við norðurinngang, lengja aðaltröppur, bæta við glugga til vesturs, síkka glugga á suðurhlið kjallara, gera útskotsglugga á austurhlið, með hurðum út á nýjan sólpall, skipta um klæðningu á þaki, taka niður núverandi skorstein og setja upp nýjan fyrir arin og endurgera steypta veggi að götu í sömu mynd og fyrir eru á einbýlishúsalóð nr. 10 við Sólvallagötu, samkvæmt uppdr. ARGOS ehf. dags. 16. október 2019. Nýjar og breyttar teikningar dags. 10. desember bárust vegna málsins. Einnig er lögð fram umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 2. desember 2019 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 15. janúar 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. janúar 2020. Einnig er lagt fram bréf Argos ehf. dags. 17. febrúar 2020 þar sem óskað er eftir að umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. janúar 2020 verði dregin til baka eða breytt þannig að byggingarfulltrúa verði unnt að heimila síkkun kjallaraglugga hússins sem snúa að garði og götu. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. febrúar 2020.
Gjald kr. 11.200
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. febrúar 2020 samþykkt.