breyting á deiliskipulagi
Dalhús 83-85
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 786
28. ágúst, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Kristins Ragnarssonar dags. 22. júní 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Húsahverfis vegna lóðarinnar nr. 83-85 við Dalhús. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni þannig að hámarkstærð húss verður 238 m2 í stað 210 m2, svalir geti verið allt að 1,9 m frá útvegg byggingarreits og að heimilt verði að yfirbyggja svalir á suðurhlið, samkvæmt uppdr. Kristins Ragnarssonar, arkitekts ehf. dags. 14. ágúst 2020. Tillagan var grenndarkynnt frá 24. ágúst 2020 til og með 21. september 2020, en þar sem samþykki hagsmunaaðila barst þann 26. ágúst 2020 er erindi nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt með vísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

112 Reykjavík
Landnúmer: 109821 → skrá.is
Hnitnúmer: 10009091