Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
Gula hússins ehf.
dags. 14. janúar 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skildinganess vegna lóðarinnar nr. 2 við Skildingatanga. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður til vesturs sem nemur 5 metrum á 10 metra kafla, samkvæmt uppdr.
VA arkitekta ehf.
dags. 26. desember 2019. Erindi var grenndarkynnt frá 6. febrúar 2020 til og með 5. mars 2020. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar