Vinnustofa
Leifsgata 11
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 742
6. september, 2019
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. september 2019 þar sem spurt er hvort leyfi fáist til þess að breyta bílskúr þannig að í stað bílskúrshurðar komi gluggi og hurð, gluggar á gafli verði endurnýjaðir, innveggir settir upp og sturta og klósett tengt inn á eldri lögn á lóð nr. 11 við Leifsgötu.
Erindi fylgja afrit af ljósmyndum teknum af núverandi ástandi bílskúrs og afrit af tölvupósti frá umsækjanda dags. 28. ágúst 2019.
Gjald kr. 11.200
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102571 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018364