breyting á deiliskipulagi
Iðunnarbrunnur 11
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 757
10. janúar, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna lóðanna nr. 11 við Iðunnarbrunn og 21 við Friggjarbrunn. Í breytingunni felst að lóð númer 21 við Friggjarbrunn er felld niður og annars vegar verður hluti af henni að borgarlandi og hins vegar verður hluti hennar sameinaður við lóð númer 11 við Iðunnarbrunn þar sem byggingarmagn breytist lítillega, samkvæmt uppdr. Trípólí Arkitekta dags. 21. nóvember 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 4. desember 2019 til og með 6. janúar 2020. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

113 Reykjavík
Landnúmer: 206070 → skrá.is
Hnitnúmer: 10079499