70-72 - Klæðning - gluggabreyting - breyting á svölum o.fl.
Engjasel 70-86
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 738
9. ágúst, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. júlí 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. júlí 2019 þar sem sótt er um leyfi til þess að klæða norðvestur gafl og suðvestur- og norðausturhlið, með sléttri álklæðningu, setja opnanleg gluggafög í stigagang og íbúðir á norðvesturhlið, breyta veltigluggum, setja svalahurðir í stað glugga á suðvesturhlið jarðhæðar ásamt því að skipta steyptum svalahandriðum út með léttum ál-gler handriðum á fjölbýlishúsi nr. 70-72 á lóð nr. 70-86 við Engjasel. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. ágúst 2019.
Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 24. júní 2019, dagskrá, mætingarlisti og fundargerð frá fundi Húsfélags Engjasels 70-72 dags. 9. maí 2019, og umboð íbúðareiganda dags. 5. maí 2019. Gjald kr. 11.200
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. ágúst 2019 samþykkt.