Breytingar - síkka glugga, dýpka svalir, nýjar hurðar
Sunnuvegur 21
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 734
28. júní, 2019
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. júní 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. júní 2019 þar sem sótt er um leyfi til að síkka glugga og bæta við og breikka hurðir á suður- og austurhlið beggja hæða ásamt því að breikka svalir einbýlishúss á lóð nr. 21 við Sunnuveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. júní 2019.
Erindi fylgir burðarvirkisteikning af breytingu svala dags. 15. maí 2019.
Gjald kr. 11.200
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. júní 2019 samþykkt.

104 Reykjavík
Landnúmer: 104935 → skrá.is
Hnitnúmer: 10022715