(fsp) breyta glugga á jarðhæð í svalahurð
Bólstaðarhlíð 5
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 732
14. júní, 2019
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. júní 2019 var lögð fram fyrirspurn Davíðs Kristófers Young dags. 24. maí 2019 ásamt bréfi dags. 21. maí 2019 um að breyta glugga á suðurhlið jarðhæðar hússins á lóð nr. 5 við Bólstaðarhlíð sem felst í að síkka hann að hluta til að koma fyrir tvöfaldri svalahurð, samkvæmt uppdr. Stoð ehf. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. júní 2019.
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. júní 2019.