Bílastæði
Freyjugata 30
Síðast Synjað á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 738
9. ágúst, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. maí 2019 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja bílskúr á lóð nr. 30 við Freyjugötu. Erindi var grenndarkynnt frá 26. júní 2019 til og með 24. júlí 2019. Engar athugasemdir bárust. Einnig lagt fram bréf Óskars Jónssonar dags. 3. júlí 2019.
Erindi fylgir samþykki meðeiganda á lóð dags. 7. maí 2019.
Stærð: 66,0 ferm., 221,2 rúmm. Stækkun: 26,0 ferm., 105,7 rúmm. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 24. maí 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. maí 2019. Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102630 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010750