skipting lóðar
Reykjavíkurvegur 31B
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 810
26. febrúar, 2021
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. febrúar 2021 var lögð fram fyrirspurn Arons Inga Óskarssonar dags. 14. maí 2019 um afmörkun lóðar að Reykjavíkurvegi 31B. Einnig eru lögð fram drög að lóðarblöðum dags. 31. mars 2019 og afsalsbréf dags. 24. október 1964. Einnig er lagt fram bréf skrifstofu sviðsstjóra dags. 25. september 2020. Einnig er lagður fram tölvupóstur Arons Inga Óskarssonar dags. 2. febrúar 2021. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. febrúar 2021.
Svar

Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. febrúar 2021.